Bull frá upphafi til enda

Hverjum dettur í hug að setja einhver lög um banka þegar allt er að fara til fjandans á landsbyggðinni? Má ég nefna að það eru engir bankar á landsbyggðinni þannig að þessi lög gera ekkert fyrir það fólk. Í staðinn fyrir að standa í svona rugli mætti kannski gera eitthvað gagnlegt. Veit ríkisstjórnin ekki að Kattholt er orðið yfirfullt af köttum? Hvernig væri að hjálpa þeim? Svo er farið að kólna í veðri, hver ætlar að gefa smáfuglunum að borða? Á ég að gera það? Þetta er alveg út í hött.

Ég á kött, sem heitir Hrellir, og hann hefur sérstaklega miklar áhyggjur af því að smáfuglarnir verði illa haldnir og magrir í vetur, vonandi að ríkisstjórnin sjái að sér.


mbl.is Neyðarlög sett í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

(-:

Bragi Þór Valsson (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 17:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband