Frábært framtak

Mér finnst það frábært framtak hjá Loga að raka af sér hárið til styrktar góðu málefni. Ég býst við því að kvenþjóðin verði yfir sig hrifin af þessu þar sem Logi hefur hingað til ekki verið þekktur fyrir að hafa fagurt hár. Það er ekki leiðum að líkjast fyrir hann, ég er með frekar þunnt hár og stundum raka ég það allt af upp á grínið.

Ég á kött, sem heitir Hrellir, og hann myndi aldrei leyfa mér að raka af sér hárið. Hann er samt svo vel í holdum að ég held að honum yrði ekkert kalt. Verst að Hrellir er ekki sjónvarpsmaður eins og Logi.


mbl.is Náði takmarkinu en tapaði hárinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband